Dómnefnd Bandalags Íslenskra Bílablaðamanna hefur valið þá 18 bíla sem komast í lokaúrtakið fyrir Bíl ársins 2017. Alls komast þrír bílar áfram í hverjum flokki en flokkarnir eru nú sex talsins. Í flokki smábíla og minni millistærðarbíla komast áfram í stafrófsröð Opel Astra, Renault Megane, og Suzuki Baleno. Í flokki millistærðar, stærri fjölskyldubíla og lúxusbíla komast áfram Mercedes-Benz E-lína, Renault Talisman og VW Passat GTE. Í sportbílaflokki komast áfram Ford Focus RS, Lexus RC300h og VW Golf GTI Clubsport. Í flokki jepplinga komast áfram Honda HRV, Kia Sportage og VW Tiguan. Í flokki jeppa komast áfram Audi Q7 E-Tron, BMW X5 Pug-in Hybrid og Lexus RX450h. Loks er flokkur pallbíla í fyrsta skipti en þar komast áfram Mitsubishi L200, Nissan Navara og Toyota Hilux.
Smábílar og minni millistærð:
Millistærð, stærri fjölskyldubílar og lúxusbílar:
Sportbílaflokkur:
Jepplingar:
Jeppar:
Pallbílar: