Að þessu sinni eru 36 nýir bílar í forvali Bandalags íslenskra bílablaðamanna, BÍBB, um Bíl ársins 2008 sem hlýtur Stálstýrið. Aðild að bandalaginu eiga blaðamenn sem fjalla um bíla og bílatengd málefni í íslenskum fjölmiðlum. Athygli vekur að af þessum 36 bílum falla 14 í flokkinn jeppar/jepplingar/pallbílar, sem segir meira en mörg orð um þá þróun sem orðið hefur úti á markaðnum í átt til meiri jeppavæðingar.

Þetta verður í fjórða sinn sem BÍBB stendur fyrir vali á bíl ársins á Íslandi. Í fyrsta sinn árið 2004 stóð Volvo S40 uppi sem sigurvegari, 2005 var það Suzuki Swift sem bar sigur úr býtum og Bíll ársins 2007 er Lexus IS.

Bílunum er skipt niður í fjóra flokka í forvali, þ.e. smábíla, millistærðarbíla, stærri fjölskyldubíla og lúxusbíla og jeppa/jepplinga/pallbíla. Þrír bílar komast upp úr forvali í hverjum flokki fyrir sig og verða gerðar ítarlegar prófanir á þeim af dómnefnd BÍBB. Að því loknu verður valinn einn sigurvegari í hverjum flokki þar sem litið verður til aksturseiginleika, notkunarsviðs, búnaðar, hönnunar og verðs. Þrír sterkir bakhjarlar gera bandalaginu kleift að standa að vali á bíl ársins en þeir eru Skeljungur, Tryggingamiðstöðin og Frumherji.

Tilkynnt verður um þá tólf bíla sem komast upp úr forvali 22. október nk. og 27. október verður tilkynnt hver er Bíll ársins 2008 á Íslandi og jafnframt um sigurvegara í hverjum flokki fyrir sig. Nánar má lesa um valið hér á þessum vef.

Í forvali eru eftirtaldir bílar:

Smábílar
Opel Corsa
Skoda Fabia
Skoda Roomster

Millstærðarbílar
Citroen C4 Grand Picasso
Honda Civic Hybrid
Honda Civic Type R
Kia Carens
Kia cee’d
Subaru Impresa
Toyota Auris
Toyota Corolla
Volkswagen Golf GT Sport
Volkswagen Golf Variant
Volvo C30

Stærri fjölskyldubílar og lúxusbílar
Ford Mondeo
Ford S-Max
Honda Legend
Kia Carnival
Lexus LS460
Lexus LS600h
Mercedes-Benz C
Volvo V70

Jeppar/jepplingar/pallbílar
BMW X5
Ford Escape
Ford Edge
Honda CR-V
Isuzu D-Max
Land Rover Freelander
Mazda BT 50
Mitsubishi Outlander
Mitsubishi Pajero
Nissan Qashqai
Nissan X-Trail
Opel Antara
Skoda Octavia Scout
Volvo XC 70