Í ár eru 33 nýir bílar í forvali Bandalags íslenskra bílablaðamanna, BÍBB, um Bíl ársins 2007. Bíll ársins hlýtur Stálstýrið.

Aðild að bandalaginu eiga blaðamenn sem fjalla um bíla og bílatengd málefni í íslenskum fjölmiðlum. Athygli vekur að af þessum 33 bílum falla tólf í flokkinn jeppar/jepplingar/pallbílar, sem segir meira en mörg orð um þá þróun sem orðið hefur úti á markaðnum í átt til meiri jeppavæðingar.

Þetta verður í þriðja sinn sem BÍBB stendur fyrir vali á bíl ársins á Íslandi. Í fyrsta sinn árið 2004 stóð Volvo S40 uppi sem sigurvegari og í fyrra bar Suzuki Swift sigur úr býtum.

Bílunum er skipt niður í fjóra flokka í forvali, þ.e. jeppa/jepplinga/ pallbíla, smábíla, stærri fjölskyldubíla og sportbíla. Þrír bílar komast upp úr forvali í hverjum flokki fyrir sig og verða gerðar ítarlegar prófanir á þeim af dómnefnd BÍBB. Að því loknu verður valinn einn sigurvegari í hverjum flokki þar sem litið verður til aksturseiginleika, notkunarsviðs, búnaðar, hönnunar og verðs.

Þrír sterkir bakhjarlar
Þrír sterkir bakhjarlar gera bandalaginu kleift að standa að vali á bíl ársins en þeir eru Skeljungur, TM og Stilling. Tilkynnt verður um þá tólf bíla sem komast upp úr forvali 13. október nk. og viku síðar, 20. október verður tilkynnt hver er Bíll ársins 2006 á Íslandi og jafnframt um sigurvegara í hverjum flokki fyrir sig.

Jeppar/jepplingar/pallbílar
Audi Q7
Ford Explorer
Ford Explorer Sport Trac
Hyundai Santa Fe
Mazda CX-7
Mercedes-Benz GL
Mitsubishi L200
Saab 97X
SsangYong Kyron
Suzuki SX4
Toyota RAV4
Toyota Hilux

Smábílar
Citroen C1
Fiat Grande Punto
Kia Rio
Mazda2
Peugeot 207
Renault Clio
Renault Modus
Toyota Yaris

Stærri fjölskyldubílar
Chevrolet Tosca
Honda Civic
Lexus IS
Mercedes-Benz R
Nissan Note
Saab 93 Sport Combi
Volvo S80

Sportbílar
Ford GT
Ford Focus ST
Mazda MX-5
Porsche 911 Turbo
Porsche Cayman
Volvo C70