Bíll ársins 2018 á Íslandi og í Evrópu – Peugeot 3008

Tilkynnt var um val á bíl ársins hjá Bandalagi íslenskra bílablaðamanna (BÍBB) síðastliðinn fimmtudag. Það var Peugeot 3008 sem hlýtur nafnbótina Bíll ársins þessu sinni. Alls voru það einir 30 bílar sem sem valið stóð á milli þetta árið, en gjaldgengir eru glænýjar bílgerðir og nýjar kynslóðir þekktari gerða. Tólf þeirra voru valdir í úrslit í fjórum flokkum, þarð er minni fólkbílar, millistærðarfólksbílar, stærri fólksbílar og jeppar og jepplingar. Peugeot 3008 fellur í flokk stærri fólksbíla, en annar í þeim flokki var Volvo V90 Cross Country og þriðji BMW 5.

Í flokki smærri fólksbíla stóð Suzuki efstur á blaði, annar var Nissan Micra og þriðji Kia Rio. Í flokki millistærðarfólksbíla varð efstur Hyundai Ionic, annar Honda Civic og þriðji Hyundai i30. Í flokki jeppa og jepplinga bar sigur úr bítum Volvo XC60, annar varð Skoda Kodiaq og þriðji Renault Koleos. Allra hæstu einkunn allra þessara bíla hlaut Peugeot 3008. Næst flestu stigin fékk svo Hyundai Ionic og þau þriðju flestu Volvo XC60. Verðlaun fyrir bíl ársins, sem og fyrir fyrstu þrjú sætin í hverjum flokki voru veitt með viðhöfn í sal Blaðamannafélagsins í Síðumúla í gær að viðstöddu fjölmenni.