Bandalag íslenskra bílablaðamanna hefur skilað af sér forvali fyrir Bíl ársins árið 2020. Átján bílar eru valdir til úrslita í sex flokkum og eru þrír bílar í hverjum flokki. Bílarnir verða nú bornir saman og prófaðir af bílablaðamönnum en tilkynnt verður um bíl ársins miðvikudaginn sextánda október.
Það vekur athygli að í ár eru tveir flokkar rafbíla sem ber vott um tíðarandann en ekki þótti rétt að setja alla rafbíla í sama flokk vegna fjölda og fjölbreytileika þeirra. Flokkarnir sem eru í valinu í ár eru minni fjölskyldubílar, stærri fjölskyldubílar, jepplingar, jeppar, rafbílar og rafjeppar.
Bíll ársins 2019 í Evrópu var rafjeppinn Jaguar I-Pace sem einnig keppir í valinu á Bíl ársins á Íslandi.
Hér má sjá lista af þeim bílum sem eru til úrslita í hverjum flokki:
Minni fjölskyldubílar: Mazda 3, Toyota Corolla, VW T-Cross.
Stærri fjölskyldubílar: Mercedes-Benz B-lína, Peugeot 508, Toyota Camry.
Jepplingar: Honda CRV, Mazda CX-30, Toyota RAV4.
Jeppar: Jeep Wrangler, SsangYong Rexton, Suzuki Jimny.
Rafbílar: Hyundai Kona EV, Kia e-Soul, Opel Ampera.
Rafjeppar: Audi e-Tron, Jaguar I-Pace, Mercedes-Benz EQC.
Birtist á frettabladid.is