Stjórn Bandalags íslenskra bílablaðamanna, BÍBB, hefur í ljósi aðstæðna tekið þá ákvörðun að gera breytingar á tilhögun varðandi val á bíl ársins á Íslandi. Reglan undanfarin ár hefur verið sú að lokavalið hefur farið fram á haustmánuðum. Í ljósi aðstæðna vegna Covid-19 heimsfaraldursins teljum við rétt að færa valið aftur til vormánaða.

Framleiðendur kynna jafnan nýjar gerðir á haustmánuðum sem koma oft á markað í október og nóvember. Af því leiðir að fjölmargar nýjar gerðir hafa ekki komist inn í forval né lokaval á Bíl ársins á Íslandi. Með því að færa lokavalið til frambúðar til vors telur stjórn BÍBB að valið endurspegli betur það úrval nýrra bíla sem í boði eru á Íslandi hverju sinni.

Engu að síður geta umboðsaðilar tilnefnt bíla nú þegar sem komnir eru til landsins og ljóst er að komi til landsins fyrir mánaðarmótin mars-apríl ár hvert. Ekkert er því heldur til fyrirstöðu að dómnefnd BÍBB hefji nú þegar prófanir á tilnefndum bílum.

Tilkynnt verður um val á bíl ársins í maímánuði ár hvert framvegis. Nánari dagsetning verður kynnt síðar.