Blaðamennirnir fjórir sem prófa alla þá bíla sem tilnefndir eru í vali á Bíl ársins 2017 hafa verið mjög uppteknir við prófanir að undanförnu. Alls eru 38 bílar í forvalinu sem er óvenju mikið þetta árið og þarf hver blaðamaður að prófa hvern og einn bíl. Að þessu sinni verða flokkarnir sex, en auk hefðbundis flokkunarkerfis verður 4X4 flokknum skipt í tvennt vegna stærðar sinnar og auk þess bætt við pallbílaflokki og sportbílaflokki. Tilkynnt verður hvaða þrír bílar í hverjum flokki komast í úrslit bráðlega með frétt á billarsins.is