BÍBB hefur opnað nýja og fullkomna heimasíðu fyrir valið á Bíl ársins sem er mun notendavænni en fyrri síða. Þar má finna fréttir vegna valsins frá upphafi ásamt myndasöfnum. Einnig má finna fróðleik um bílana og hvað Bandalag Íslenskra Bílablaðamanna stendur fyrir. Ef þú líkar við síðuna Bíll ársins á Íslandi fyrir 8. september áttu möguleika á að taka þátt í starfi dómnefndar í vali á Bíl ársins 2017. Það verður ekkert leiðinlegt að vera með okkur í tvo daga og keyra átján mismunandi nýja bíla, allt frá sportbílum yfir í pallbíla og allt þar á milli.