Mitsubishi Colt hefur verið valinn Bíll ársins í Danmörku 2004. Hann hlaut 182 af 625 mögulegum en í næstu sætum kom Skoda Octavia sem hlaut 142 stig og smábíllinn Renault Modus hafnaði í þriðja sæti með 113 stig. Í fjórða sæti hafnaði Peugeot 407, með 108 stig, og fimmta sætið vermdi smábíllinn Kia Picanto með 80 stig.

Þetta er í 25. sinn sem danskir bílablaðamenn velja Bíl ársins í Danmörku. Á síðasta ári varð Mazda3 fyrir valinu.