Screen shot 2016-12-15 at 17.55.10Sjö bílar hafa verið valdir til úrslita í valinu á bíl ársins í Evrópu þetta árið. Það eru 58 bílablaðamenn frá 22 löndum sem velja bíl ársins að þessu sinni og völdu þeir 7 bíla af 30 sem komist höfðu í forvalið. Bílarnir sem til greina koma eru Alfa Romeo Giulia, Citroën C3, Mercedes Benz E-Class, Nissan Micra, Peugeot 3008, Toyota C-HR og Volvo S90/V90.

Af þessum 7 bílum eru 5 þeirra sérstaklega smíðaðir fyrir Evrópumarkað, en Nissan Micra og Toyota C-HR teljast heimsbílar sem smíðaðir eru fyrir alla bílamarkaði heims. Aðeins einn af þessum 7 bílaframleiðendum sem eiga bíla í úrslitum nú hefur aldrei unnið til verðlaunanna bíll ársins í Evrópu áður en það er Volvo.

Enginn kóreskur eða bandarískur bílaframleiðandi náði með bíl í úrslit þessu sinni og eru þeir allir annaðhvort evrópskir eða japanskir. Né heldur náði nokkur rafmagnsbíll, tengiltvinnbíll eða Hybrid bíll í úrslit.

Birt á visir.is 29. nóv 2016